Hvað var metið?Hvernig?Hverjir?Helstu niðurstöður
Grunnþættir menntunarSköpun og menning, Heilbrigði og vellíðanRýnihópar barna og foreldra, umræðuhópar starfsfólks og deildarfundir, skráning deildarstjóraBörn, starfsfólk, foreldrar
Styrkleikar

Í skólanum er náttúrulegt umhverfi, söfn og menningarstofnanir markvisst notaðar til fróðleiks og innblásturs, starfsfólk notar opnar spurningar í sköpunarstarfi með börnum og verk þeirra eru sýnileg í skólanum allt árið um kring. Mörg verkefni tengjast náttúru og ferlum sem þar finnast. Börnin hafa gaman af skapandi verkefnum og njóta þess að syngja oft í viku. Þau sækjast í útiveru og vettvangsferðir allan ársins hring og fá hreyfingu í fjölbreyttu umhverfi. Virðing fyrir öðrum, jákvæð og ábyrg hegðun vega þungt í áherslum skólastarfsins.

Tækifæri til umbóta

Skoða efnivið fyrir leikræna tjáningu og tónlist. Ýta undir skapandi hugsun við verkefni hjá börnum. Auka framboð á frjálsum skapandi stundum. Efni söngstunda taki meira mið af óskum barna. Söngtextar og upptökur á söngvum sé oftar miðlað til foreldra. Skoða hvort gera mætti matarstefnu í skólanum og auka þátttöku barna í athöfnum tengdum máltíðum. Öryggisnefnd skoði hljóðvist. Ræða leiðir til að stuðla að ró í skipulagi og umhverfi leikskólans.

MannauðurTeymisvinna, Traust, Lærdómssamfélagið, Faglegt samstarfUmræðuhópar starfsfólks, deildarfundir, starfsmannakönnun starfsmannasamtöl, rýnihópar barna, rýnihópar foreldraBörn, starfsfólk, foreldrar
Styrkleikar

Starfsfólk upplifir virkt lærdómssamfélag, sérstaklega hvað snertir styðjandi menningu, jákvæðni í garð breytinga og dreifingu á verkefnum á deildum. Upplýsingaflæði í tengslum við ákvarðanatöku í daglegu skólastarfi er skilvirkt. Starfsmannasamtöl leiddu í ljós að traust ríkir í starfsmannahópnum og óskir um símenntun snúa nær allar að leiðum til að auka vellíðan og þroska barna. Stjórnendateymi skólans er sterkt og skoðanaskipti opin. Foreldrar upplifa samskipti og samstarf gott meðal starfsfólks, samræmi sé milli deilda hvað snertir áherslur og teymisvinna ríki á deildum. Ytra mat Reykjavíkurborgar á faglegu starfi var athugasemdalaust.

Tækifæri til umbóta

Auka samvinnu og teymishugsun þvert á deildir, fá vandaða fræðslu um teymi og samskipti, skoða jafningjaendurgjöf/heimsóknir eða hvernig nýta má mannauð milli deilda. Kanna markvisst þekkingu og áhugasvið starfsfólks, sérstaklega nýliða. Festa í skipulagsdaga innlegg frá starfsfólki. Innleiða 38-36 tíma vinnuviku fyrir allt starfsfólk.

StarfsaðferðirVinátta og tengsl, Sjónarhorn barna, Sjálfsprottinn leikur, Vellíðan og öryggiRýnihópar barna og foreldra, umræðuhópar og skráningar starfsfólks, deildarfundir, mat stjórnendaBörn, starfsfólk, foreldrar
Styrkleikar

Sjónarhorn barna er fastur liður í innra mati yfir árið og viðburðateymi einnig. Börnin skilja vel hvað felst í góðri vináttu og tengja það við samskiptareglur og lausnahringinn. Þau telja sig fá góðan tíma til að leika sér og frelsi til að velja leikfélaga og viðfangsefni. Börnin eru hvött til að deila reynslu, hugmyndum og tilfinningum jafnt í skipulögðum samverustundum og sjálfsprottnu starfi. Þau hafa tækifæri til að hafa áhrif á viðfangsefni skólastarfsins og lögð er áhersla á hlutdeild allra í barnahópnum. Starfsfólk ígrundaði eigið starf í samhengi við sjálfsprottinn leik með skráningum og umræðum, til að auka skilning á hlutverki leiksins, sjá stöðu barnsins og tækifæri sem leikurinn gefur til þroska. Innra matsteymi tók inn nýja starfsmenn og fleiri innan teymisins unnu að niðurstöðum ársins. Foreldrar lýsa mikilli ánægju með faglegt starf skólans, áherslu á vellíðan barna, fjölbreytni viðfangsefna, samskipti og upplýsingagjöf.

Tækifæri til umbóta

Taka skref í því að auka sjálfstæði barna í máltíðum, s.s. frágangur og kaffitími, en börnin lýsa áhuga á þeim verkefnum. Leita enn markvissar eftir hugmyndum barna og styðja þau við útfærslu/framkvæmd. Halda þarf áfram með að ígrunda sjálfsprottna leikinn í samhengi við námsumhverfi, dagskipulag og hlutverk starfsfólks. Skoða skipulag í fataherbergjum. Skoða hvort skipulag skólastarfsins uppfyllir óskir barna um sjálfsprottinn leik, bæði úti og inni (nýting rýmis/hljóðvist). Fá áframhaldandi fræðslu um leikinn og hlutverk starfsfólks. Upplýsa foreldra betur um leiðir sem skólinn fer við mat á námi og þroska barna.

Hvað var metið?Hvernig fór matið fram?Hverjir tóku þátt?Helstu niðurstöður
Ytra mat frá SFSSkil á gögnum, sp.listi.StjórnendurGögn skólans, umhverfi og aðbúnaður metin í góðu lagi.