Starfsfólk og foreldrar

Þau sem starfa með börnum takast á hendur mikilvægasta starf hvers samfélags. Því fylgir mikil ábyrgð að sinna á sama tíma hvatningu, stuðningi, umhyggju, aga, þroska, námi, samskiptum og öllu því sem börnin upplifa í leik og starfi skólans. Til þess að sinna því hlutverki þarf leikskólinn að vera virkt lærdómssamfélag sem aflar, deilir og tileinkar sér nýja þekkingu, ígrundar eigið starf og samstarfsfólks á umbótamiðaðan hátt og skapar jákvæðan og styðjandi skólabrag þar sem ríkir traust og sálrænt öryggi.

Í Vinagarði hafa leikskólakennarar faglega forystu, á daglegum vettvangi starfsins, í gegnum deildarstjórn og með því að sinna umbóta- og þróunarverkefnum. Hlutverk leikskólakennara er meðal annars að aðlaga námssvið leikskólans að áhuga barna, skrá leik og samskipti þeirra sem hluta af því að hafa yfirsýn yfir almenna færni og nám þeirra. Leikskólakennarar eru leiðandi í að efla nám barnanna með hliðsjón af námssviðum og grunnþáttum menntunar í gegnum leikinn og þróun hans. Leikskólakennarar skapa leikskilyrði svo leikurinn fái nægt rými, tíma, fái stuðning af fjölbreyttum efnivið og stýrist af áhuga barna. Leikskólakennarar styðja við leik barna og gæta þess að öll fái tækifæri til þátttöku á eigin forsendum.

Við upphaf leikskólagöngunnar er lögð áhersla á að leggja góðan grunn að samstarfi við foreldra þar sem umhyggja og velferð barna er höfð að leiðarljósi. Mikilvægt er að þetta samstarf byggist á gagnkvæmum skilningi og virðingu fyrir viðhorfum og þekkingu hvors annars. Einnig þarf að ríkja traust milli þessara aðila og að þeir geti deilt sjónarmiðum sínum og tekið sameiginlegar ákvarðanir er varða einstök börn. Mikilvægt er að upplýsingaflæði milli foreldra og kennara sé gott, deildarstjóri upplýsingamiðlun og tengslum við foreldra. leikskólagöngunnar er foreldrum boðið á kynningarfund og svo foreldrasamtal við deildarstjóra þegar aðlögun hefst. Skipulögð foreldrasamtöl eru yfir veturinn. Þess utan geta foreldrar alltaf óskað eftir viðtali. Í upphafi hverrar haustannar er haldinn almennur foreldrafundur þar sem starfið er kynnt og boðið er upp á opna umræðu.

Virkt samstarf er í hverfinu milli leikskóla og Langholtsskóla um að gera aðlögun barna yfir skólastigin sem auðveldust fyrir börnin. Að hausti sækir deildarstjóri elstu barna sameiginlegan fund með skólum í hverfinu þar sem búin er til viðburðadagskrá fyrir veturinn. Að vori hefjast skólaheimsóknir; bæði koma kennarar grunn skólans og heimsækja elstu börnin og svo fara þau í vorskóla Langholtsskóla og heimsóknir í viðkomandi frístundaheimili. Börn sem sækja aðra grunnskóla fá einnig tækifæri til að heimsækja sína skóla.