Hér fyrir neðan er hægt að nálgast texta að lögunum sem við syngjum á Vinagarði, en okkur finnst einstaklega gaman að syngja og gerum mikið af því. Upptökur eru með flestum lögunum þannig að þeir sem ekki kunna laglínurnar geta lært þær. Upptökurnar eru ýmist frá okkur á Vinagarði eða frá Þjóðkirkjunni.

Á bjargi byggði hygginn maður hús, (x3)
og þá kom steypiregn.
Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx, (x3)
og húsið á bjargi stóð fast.

Á sandi byggði heimskur maður hús, (x3)
og þá kom steypiregn.
Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx, (x3)
og húsið á sandi, það féll.

Allir þurfa’ að eiga vin,
allir þurfa’ að eiga vin.
Leggjum núna hönd í hönd
og hnýtum okkar vinabönd.

Þegar bjátar eitthvað á
allt það segja vini má,
ýta sorgum öllum frá
og aftur gleði sinni ná.

Allir þurfa’ að eiga vin,
allir þurfa’ að eiga vin.
Leggjum núna hönd í hönd
og hnýtum okkar vinabönd.

Vináttan hún færir frið,
friður bætir mannkynið.
Öðrum sýnum ást og trú
og eflum vináttuna nú.

Allir þurfa’ að eiga vin,
allir þurfa’ að eiga vin.
Leggjum núna hönd í hönd
og hnýtum okkar vinabönd.

Höfundur texta: Margrét Ólafsdóttir

B I B L Í A
er bókin bókanna
á orði Drottins er allt mitt traust,
B I B L Í A

 

Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.

Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir.
Fundið sínum ferðum á
fjölda margar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undur skæra.
Barn í jötu borið var
barnið ljúfa kæra.

Barni gjafir báru þeir
blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir
lofgjörð Drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín
stjarnan allra barna.

Lofum Guð fyrir þennan mat.
Lofum Guð fyrir þennan mat.
Lofum Guð fyrir þennan mat.
Lofaður sé Guð.

Hallelúja, lofum Guð.
Hallelúja, lofum Guð.
Hallelúja, lofum Guð
fyrir þennan mat. Amen

Þú Guð sem fæðir fugla smá
fyrir oss munt einnig sjá.
Fyrir heilsu, gleði, daglegt brauð
við þökkum þér, ó, Guð.

Daginn í dag (2x)
gerði Drottinn Guð. (2x)
Gleðjast ég vil (2x)
og fagna þennan dag. (2x)
Daginn í dag, gerði Drottinn Guð,
gleðjast ég vil og fagna þennan dag.
Daginn í dag (2x)
gerði Drottinn Guð.

Djúp og breið, djúp og breið,
það er á sem rennur djúp og breið.
Djúp og breið, djúp og breið,
það er á sem rennur djúp og breið.

Og hún rennur til mín
og hún rennur til þín,
og hún heitir lífsins lind.

Djúp og breið, djúp og breið,
það er á sem rennur djúp og breið.

Ef ég væri fiðrildi
myndi’ ég þakka þér Guð mína fögru vængi.
Og ef ég væri þröstur í tré
þér látið gæti minn lofsöng í té.
Og ef ég er nú fiskur í sæ
með sporðinum vinkað ég Guð til þin fæ.
En þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ég er.

Því þú gafst mér nýtt hjarta gleðin svellur í mér.
Þú gafst mér Jesú og nú Guðs barn ég er.
Og þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ég er.

Ef ég væri afríkufíll
ég rananum lyfti í þakkargjörð.
Og ef ég væri krókódíll
fengir þú stærsta bros á jörð.
Og ef ég væri kengúra
ég hoppa myndi upp til þín, húrra!
En þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ég er.

Því þú gafst mér nýtt hjarta…..

Breyttist ég í iðandi orm
ég óðara fengi frá þér nýtt form.
Og ef ég væri belja á bás
af bauli til þín ég yrði hás.
Og ef ég væri loðinn ísbjörn
ég þakka myndi þér mína góðu kuldavörn.
En þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ég er.

Því þú gafst mér nýtt hjarta….

Hjálmar Guðnason

Ef þig langar lífið að létta
svona gerum við þá.
Brosum blítt og beygjum fætur
og hristum hausinn, hristum rassinn,
hristum okkur öll.
Setjum hendur út, svo á mallakút.
Svo setjum við á munninn stút.

Ég er með hendur að klappa með
(klapp, klapp, klapp, klapp)
fætur að stappa með
(stapp, stapp, stapp, stapp)
rödd til að syngja með tra, la, la.
Ég syng fyrir Guð.

Ég er stundum leið og þá vil ég bara gráta.
Ég er stundum reið eins og lítið mý.
Ég er stundum gramur og langar að rífast.
Þá rís ég upp og svo fer ég að syngja.

Ég er með hendur………

En stundum er gaman, þá vil ég bara hlæja,
en stundum svo fúl(l) og vil ekki neitt.
Ég er stundum sælli en nokkur fær skilið,
þá rís ég upp og svo fer ég að syngja.

Ég er með hendur………

Kristján Valur Ingólfsson

Ég verð aldrei einmana,
einmana, einmana,
ég verð aldrei einmana,
Jesús hefur sagt:
Ég er með þér, alla daga, alla daga,
ég er með þér alla þína tíð.

Texti: Matt. 28.20 Hans Blennow – Kristján Valur Ingólfsson
Lag: Hans Blennow

Ég vil líkjast Daníel, og ég vil líkjast Rut.
Því Rut hún er svo sönn og góð,
og Daníel fylltur hetjumóð.
Ég vil líkjast Daníel, og ég vil líkjast Rut.

Texti: Daníelsbók – Rutarbók
Lag: Höfundur ókunnur

Ég þekki Jesú og tala oft við hann.
Við erum afar góðir vinir.
Hvert sem ég fer, þá fylgist hann með mér
því Jesús hann elskar mig.
:,:Hann elskar mig. Hann elskar mig. Jesús, hann elskar mig.:,:

Texti og lag: Helga Jónsdóttir

Elska Jesú er svo dásamleg, (3x)
elska svo dásamleg.
Svo há, þú kemst ekki yfir hana,
svo djúp, þú kemst ekki undir hana,
svo víð, þú kemst ekki’ út úr henni,
elska svo dásamleg.

Englar Guðs þeir vaka yfir mér
alla daga’ og nætur,
hvert sem ég fer,
út á götu, upp á hól,
undir borði, upp á stól,
alla daga’ og nætur
þeir vaka yfir mér
sem betur fer!

Lag og texti: Helga Jónsdóttir

Sigga litla systir mín
situr úti í götu,
Er að mjólka ána sín
í ofurlitla fötu.

Afi minn fór á honum Rauð
Eitthvað suður á bæi.
Sækja bæði sykur og brauð,
Sitt af hvoru tagi.

Afi minn og amma mín
úti á Bakka búa.
Þau eru bæði sæt og fín
Þangað vil ég fljúga.

Fljúga hvítu fiðrildin
Fyrir utan gluggann.
Þarna siglir einhver inn
Ofurlítil dugga.

Fuglinn segir bí, bí, bí,
Bí, bí segir Stína.
Kveldúlfur er kominn í
kerlinguna mína.

Guð á himnum sagði við Nóa:
„Þú munt bjargast flóði frá:
Örkina stóru skalt þú smíða.
Orði mínu byggðu á:“
Hann fór að smíða. Hann fór að saga.
Sa saga sa sa saga
Hann fór að smíða. Hann fór að saga
og saga, vann alla daga
duglegur Nói gamli var.

1. Mós. 5-9
Lag og texti: Helga Jónsdóttir

Gulli og perlum að safna sér
sumir endalaust reyna
vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.

Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina
en viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.

Texti: Hjálmar Freysteinsson

Hallelú, hallelú, hallelú, hallelúja,
vegsamið Guð.
Hallelú, hallelú, hallelú, hallelúja,
vegsamið Guð.

Vegsamið Guð,
hallelúja,
vegsamið Guð,
hallelúja,
vegsamið Guð,
hallelúja,
vegsamið Guð.

(Víxlsöngur: Einn hópur syngur „Hallelúja“, annar hópur syngur „vegsamið Guð“)

Texti: Höfundur ókunnur – Jón Hjörleifur Jónsson Lag: Höfundur ókunnur

Hann Davíð var lítill drengur,
á Drottins vegum hann gekk.
Hann fór til að fella risann
og fimm litla steina hann fékk.
Einn lítinn stein í slönguna lét
og slangan fór hring eftir hring
Hring eftir hring og hring eftir hring og hring eftir hring eftir hring.
Upp í loftið hentist hann
og hæfði þennan risamann.

Texti: I. Sam. 17.32-54
Lag: Höfundur ókunnur

Hann Sakkeus var að vexti smár,
varla nema svona hár.
Hann vatt sér upp í vænsta tré,
:,: svo vel hann gæti séð. :,:

Og mikinn fjölda fólks hann sá
á ferð um veginn rétt þar hjá.
Og hjartað brann af heitri þrá,
:,: Hann Herrann vildi sjá. :,:

Og Jesús minnsta manninn sér
og mæla þannig fer:
„Sakkeus, flýt þér ofan,
:,: í dag ég dvel hjá þér“. :,:

Texti: Lúk. 19.1-10
Lag: Höfundur ókunnur

Hve margt er það líf sem í moldinni býr,
það mundu og gæt þar að,
hvar svolítið hræddur burt snigillinn flýr
og smámaurinn nagar blað.
Og fiðrildavængi og blómanna blöð
ég bið þig ei skemma nú,
því víst mega fiðrildin vera eins glöð
á vorin sem ég og þú.

Hjá lítilli þúfu er lóa á kreik,
hún læddist um urð og mel.
Við ólukkans varginn er alla tíð smeyk
og eggin sín felur vel.
Æ, syngdu nú lóa, þinn lofgjörðaróð,
um lífið og hreiðrið þitt
og minntu hvern á sem að heyrir það hljóð
að hugsa um búið sitt.

Er þrösturinn hljóðnar og sólin er sest
ég sitja við gluggann má
og spenna þar greipar í birtu sem berst
svo brosmildum stjörnum frá.
Og þá fyrir sjúkum og beygðum ég bið,
að berir þeim vor í geð
með fugli og blómi, Guð leggðu þeim lið
og láttu þau gleðjast með.

Kristján Valur Ingólfsson

Hver hefur skapað :,: blómin björt?
:,: Hver hefur skapað blómin björt?
Guð á himninum.

Hver hefur skapað :,: fuglana?
:,: Hver hefur skapað fuglana?
Guð á himninum.

Hver hefur skapað :,: stjörnurnar?
:,: Hver hefur skapað stjörnurnar?
Guð á himninum.

Hver hefur skapað :,: þig og mig?
:,: Hver hefur skapað þig og mig?
Guð á himninum.

Hver hefur skapað blómin björt,
fuglana, stjörnurnar?
Hver hefur skapað þig og mig?
Guð á himninum.

Texti: Mildred Adair – Höfundur ókunnur
Lag: Höfundur ókunnur

Í Betlehem er, :,: barn oss fætt,
:,: Því fagni gjörvöll Adams ætt.
:,: Hallelúja :,:

Það barn oss fæddi :,: fátæk mær,
:,: Hann er þó dýrðar Drottinn skær.
:,: Hallelúja :,:

Hann var í jötu :,: lagður lágt,
:,: en ríkir þó á himnum hátt.
:,: Hallelúja :,:

Hann vegsömuðu :,: vitringar,
:,: hann tigna himins herskarar.
:,: Hallelúja. :,:

Þeir boða frelsi’ og :,: frið á jörð :,:
og blessun Drottins barnahjörð.
:,: Hallelúja. :,:

Vér undir tökum :,: englasöng,
:,: og nú finnst oss ei nóttin löng.
:,: Hallelúja. :,:

Vér fögnum komu :,: frelsarans, :,:
vér erum systkin orðin hans.
:,: Hallelúja. :,:

Hvert fátækt hreysi :,: höll nú er, :,:
því Guð er sjálfur gestur hér.
:,: Hallelúja. :,:

Í myrkrum ljómar :,: lífsins sól. :,:
þér, Guð, sé lof fyrir gleðileg jól.
:,: Hallelúja. :,:

Sb. 73
Texti: Latneskur sálmur frá 14. öld – Valdimar Briem
Lag: Þýskt vísnalag frá um 1600 / Andreas Peter Berggreen 1849

Jesús elskar eitt og hvert,
stór og smá, stór og smá.
Jesús elskar eitt og hvert
Jesús elskar alla.
ELskar pabba, elskar mömmu,
stóru systur og litla bróður.
Elskar mig, elskar þig
Jesús elskar alla.

Jesús er besti vinur barnanna (2x)
Alltaf er hann hjá mér
aldrei fer hann frá mér.
Jesús er besti vinur barnanna.

Jesús er bjargið sem byggja má á,
bjargið sem byggja má á,
borgin sem óvinir sigrað ei fá,
óvinir sigrað ei fá.
Hann er frelsarinn, hann er frelsarinn,
hann er frelsarinn,
frelsari minn og þinn.

Texti: Matt. 7.24-25
Lag: Birgir Sveinsson

Krossinn á Golgata stóð,
á krossinn negldur var Jesús.
Gröfin í garðinum var,
í gröfina lagður var Jesús.

En, krossinn er auður, gröfin er tóm,
Jesús reis upp og hann lifir.
Krossinn er auður, gröfin er tóm.
Jesús reis upp og hann lifir.

Lag og texti: Geir Hindar
Þýðing: Guðmundur Karl Brynjarsson

(allir)

(Ungagarður, Grísagarður og Kópagarður)

Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.

Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.

Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið

Texti: Ásmundur Eiríksson
Lag: Sænsk laggerð af þýsku þjóðlagi

Með Jesú í bátnum get ég brosað í stormi,
brosað í stormi, brosað í stormi.
Með Jesú í bátnum get ég brosað í stormi
er ég sigli heim.
Er ég sigli heim, er ég sigli heim.
Með Jesú í bátnum get ég brosað í stormi
er ég sigli heim.

Matt. 8.23-27
Texti: Höfundur ókunnur
Lag: Höfundur ókunnur

Megi gæfan þig geyma,
megi Guð þér færa sigurlag.
Megi sól lýsa þína leið,
megi ljós þitt skína sérhvern dag.
Og bænar bið ég þér,
að ávallt geymi
þig Guð í hendi sér.

Texti: Bjarni Stefán Konráðsson
Lag: frá Írlandi

(allir)

(Ungagarður, Grísagarður og Kópagarður)

:,:Minn Guð er svo stór
svo sterkur og máttugur
ekkert er honum um megn:,:

Hann skapaði allt,
hvert fjall og hvern dal,
himininn, hafið og stjörnur.

Minn Guð er svo stór
svo sterkur og máttugur,
ekkert er honum um megn.

Hilmar Einarsson

Minn Guð þú elskar öll þín börn.
Þú elskar líka mig.
Þú ert minn skjöldur, skjól og vörn
því skal ég elska þig.

Þú gafst oss, herra Guð, þinn son,
hve góður Jesús er.
Hann hjá mér vekur helga von
og huggun veitir mér.

(Sigurbjörn Sveinsson)

(Sungið við sama lag og A ram sam sam)

Ó, hangikjöt, ó, hangikjöt,
og rófustappa, grænar baunir, súrhvalur!
Ó hangikjöt, ó, hangikjöt,
og sviðasulta, hrútspungar og harðfiskur!

Og hákarl, og flatbrauð!
Mér finnst svo gott að borða allan þennan mat!
Og hákarl, og flatbrauð!
Mér finnst svo gott að borða allan þennan mat!

Lag: Þjóðlag frá Ísrael / Texti: Guðlaug Kristjánsdóttir

Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.

Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera,
en forðast allt hið illa,
svo ei mér nái’ að spilla.

Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
þín lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.

Þín umsjón æ mér hlífi
í öllu mínu lífi,
þín líknarhönd mig leiði
og lífsins veginn greiði.

Mig styrk í stríði nauða,
æ, styrk þú mig í dauða.
Þitt lífsins ljósið bjarta
þá ljómi’ í mínu hjarta.

Með blíðum barnarómi
mitt bænakvak svo hljómi:
Þitt gott barn gef ég veri
og góðan ávöxt beri.

Sb. 503
Texti: Páll Jónsson
Lag: Andreas Peter Berggreen 1844

Ó, ljóssins faðir, lof sé þér,
að líf og heilsu gafstu mér
og föður minn og móður.
Nú sest ég upp, því sólin skín,
þú sendir ljós þitt inn til mín.
Ó, hvað þú, Guð ert góður.

Þú býr á háum himnastól
og hefur skapað þessa sól
og alla veröld víða,
þú klæðir grösum fagra fold,
þú fæðir veikan orm í mold,
og dýr og fuglinn fríða.

Þig lofa gjörvöll lífsins mál,
þig lofar einkum mannsins sál,
hún þekkir elsku þína.
Ég veit, minn Guð, þú verndar mig,
ég veit ég á að biðja þig,
sem tilbjóst tungu mína.

Þitt blessað ljósið lýsi mér,
svo lifi ég og fylgi þér
á vísdóms vegi sönnum,
en auk mér þroska, dyggð og dáð,
svo dafni ég í Jesú náð,

Þigg, Guð, minn faðir, hug og hönd,
mitt hjarta, vilja, líf og önd,
svo blessuð boð þín geymi.
Að treysta, hlýða, þóknast þér
sé þúsund sinnum dýrra mér,
en fylgja holdi’ og heimi.

Sb. 506
Texti: Matthías Jochumsson
Lag: Niels W. Gade

Ó, seg mér, fuglinn frjálsi
sem flýgur inn í skóg.
Hví ertu alltaf glaður
og átt af söngvum nóg?
Þú syngur sérhvern morgun,
þú syngur fram á nótt,
og hugljúf rödd þín hljómar
svo hrein með undraþrótt.

Þú berð ei dýran búning,
þú býrð við kjörin þröng.
En laus við kapp og kvíða
þú kvakar dægrin löng.
Þú uppskerð aldrei kornið,
því ekki kanntu’ að sá.
En samt þú alltaf syngur
af sælli hjartans þrá.

Texti: Johan Ludvig Runeberg – Ólafur Jóhannson
Lag: Chr. W. Gluck

Ótal, óteljandi fuglar, þúsund milljónir
af öllum stærðum út um allt eru’ að sýna sig.
Ótal, óteljandi fuglar, þúsund milljónir,
Guð samt þekkir hvern og einn, og Guð þekkir mig.

Ótal, óteljandi blómin, þúsund milljónir,
í öllum litum út um allt engið sýna sig.
Ótal, óteljandi blómin, þúsund milljónir,
Guð samt þekkir hvert og eitt, og Guð þekkir mig.

Ótal, óteljandi börnin, þúsund milljónir,
öll nöfnin þeirra Guð man, þótt þau feli sig.
Ótal, óteljandi börnin, þúsund milljónir,
Guð samt þekkir hvert og eitt, og Guð þekkir mig.

Texti: J. Gowans – Rut Wilhelmsen – Karl Sigurbjörnsson
Lag: J. Larsson

Regnboginn er himinhár,
gulur, rauður, grænn og blár.
Regnboginn er sáttmáli
milli Guðs og mín.

1. Mós. 9.1-17
Lag og texti: Helga Jónsdóttir

Takk fyrir mömmu
og takk fyrir pabba minn.
Takk fyrir trúna
og kærleikann þinn.

Takk fyrir þetta allt,
já, takk fyrir lífið
sem gefur svo margt.

Takk fyrir róló
og takk fyrir krakkana.
Takk fyrir alla
sem passa upp á mig.

Takk fyrir þetta allt,
já, takk fyrir lífið
sem gefur svo margt.

Takk fyrir brauðið
og takk fyrir ostinn,
já, takk fyrir mjólkina.
Takk fyrir mig.

Takk fyrir þetta allt,
já, takk fyrir lífið
sem gefur svo margt.

Takk fyrir fuglana.
Takk fyrir fiskana.
Takk fyrir kisu
sem leikur við mig.

Takk fyrir þetta allt,
já, takk fyrir lífið
sem gefur svo margt.

Texti og lag: Hafdís Huld Þrastardóttir og Alisdair Wright

Takk Guð, fyrir daginn í dag.
Takk Guð fyrir vini mína.
Takk Guð fyrir Jesú
því að hann lifir í mér.

Höf. Keith Reed

Tendrum lítið ljós
ljós er boðar heilög jól.
Sannur jólafriður fagur
fer um byggð og ból.

Stjarna lýsir leið
lýsir aðventunnar veg.
Jesús kemur, jörðu gefur
jólin gleðileg.

Höf. Pétur Þórarinsson

:,: Tikki, tikki ta, tikki, tikki ta,
tikki, tikki, tikki, tikki ta. :,:
:,: Alla daga’ og allar nætur
augu Jesú vaka yfir mér. :,:

Texti: Höfundur ókunnur
Lag: Höfundur ókunnur

Upprisinn er hann, húrra, húrra,
hann lifir, hann lifir, hann lifir enn.
Hann lifir, hann lifir, hann lifir enn.

Tóm er gröfin og opin,
hví er ekki meistarinn hér?
Klæðin hans liggja þar inni enn,
en enginn veit hvar hann er,
enginn veit hvar hann er.

Upprisinn er hann . . .

Glöð við þökkum þér, Jesús,
við þekkjum hver máttur þinn er.
Þú gafst þig sjálfan til lausnar lýð
svo líf eigum æ með þér,
líf eigum með þér.

Upprisinn er hann . . .

Nýja menn vill Guð gera
og gleðin mun ríkja, því
breytast mun geimur í geislaflóð
er Guð skapar allt á ný,
Guð skapar allt á ný.

Upprisinn er hann . . .

Texti: Margareta Melin – Kristján Valur Ingólfsson
Lag: Lars Åke Lundberg

(Lag: Grænt, grænt, grænt er..)

Við erum góð, góð hvort við annað.
stríðum ekki eða meiðum neinn.
Þegar við grátum huggar okkur einhver,
Þerrar tár og klappar okkar kinn. (2x)

Við erum vinir, við erum vinir,
ég og þú, ég og þú.
Leikum okkur saman, leikum okkur saman
í allan dag, í allan dag.

Við kveikjum einu kerti á
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.

Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans,
því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda’ í líking manns.

Við kveikjum þremur kertum á,
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.

Við kveikjum fjórum kertum á.
Brátt kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa að sjá,
að það er frelsarinn.

Höf. Lilja S. Kristjánsdóttir

Við setjumst hér í hringinn
og hendur mætast þá,
en systkin öll við erum
og engum gleyma má.

Því Jesús elskar alla
og alla jörð á hann.
Hann veitir okkur vini,
og verndar sérhvern mann.

Við setjumst hér í hringinn
og hendur mætast þá,
en systkin öll við erum
og engum gleyma má.

Lof syngjum Guði góðum
sem gefur líf og von
og sendir hátt úr hæðum
til hjálpar eigin son.

Við setjumst hér í hringinn
og hendur mætast þá,
en systkin öll við erum
og engum gleyma má.

Texti: Margareta Melin – Kristján Valur Ingólfsson
Lag: Lars Åke Lundberg

Það er skemmtilegast að leika sér
þegar allir eru með.
Í stórum hóp, inn um hlátrasköll,
geta ævintýrin skeð.
Svo vertu velkominn,
nýi vinur minn.
Það er skemmtilegast að leika sér
þegar allir eru með.

Það er ótrúlegt hverju lítið bros
fengið getur breytt
Getur glatt og huggað jafnvel þá
sem við þekkjum ekki neitt.
Svo vertu velkominn,
nýi vinur minn.
Það er ótrúlegt hverju lítið bros
fengið getur breytt.

Texti og lag: Hafdís Huld Þrastardóttir og Alisdair Wright

Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá
á jólunum fyrstu var dýrlegt að sjá.
Þá sveimuðu englar frá himninum hans
að hann var nú fæddur í líkingu manns.

Þeir sungu hallelúja með hátíðarbrag
nú hlotnast guðsbörnunum friður í dag.
Og fagnandi hirðarnir fengu á sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.

Ég bið þig, ó, Drottinn að dvelja mér hjá
að dýrðina þína ég fái að sjá.
Ó, blessa þú Jesús öll börnin þín hér
að búa þau fái á himnum með þér.

(Björgvin Jörgensson)

:,: Þegar stormur, þegar stormur
stríður geisar allt um kring. :,:
Ég veikur er, en víst mig ber
hans voldug hönd að dýrðarströnd.
Þegar stormur, þegar stormur
stríður geisar allt um kring.

Mt. 8.23-27
Texti: Höfundur ókunnur
Lag: Höfundur ókunnur

Þekkir þú Jesú sem þig hefur skapað,
þekkir Jesú sem elskar þig heitt?
Þekkir þú Guð sem gefur þér lífið,
gefur þér kærleik sem öllu fær breytt?

Já kynnstu Jesú, hann kallar á þig,
hann kallar barn sitt til fylgdar við sig.
Hann fer á undan og vísar þér veg.
Já, veldu hann eins og ég.

Veist þú um Jesú? Á vatninu gekk hann,
vitjaði sjúkra og læknaði þá?
Þekkir þú hann sem blessaði börnin?
Bið þú til Jesú, hann hlustar þig á.

Já kynnstu Jesú, hann kallar á þig,
hann kallar barn sitt til fylgdar við sig.
Hann fer á undan og vísar þér veg.
Já, veldu hann eins og ég.

Þekkir þú hann sem vill hönd þína leiða,
hann sem þig elskar og vinur þinn er?
Þekkir þú hann sem gefur þér gleði,
grátinn þinn stöðvar og leiðbeinir þér?

Ég þekki Jesú, ég þrái svo heitt
að þínu lífi hann fái nú breytt.
Hann er minn vinur og vonandi þinn.
Ég valdi Jesú, vin minn!

Lag: Olav Ruud
Íslensk þýðing: Þórdís Ágústsdóttir