Leikur og lærdómssamfélag

Formleg menntun einstaklinga hefst í leikskóla, fyrsta stigi skólakerfisins. Þar á velferð og hagur barna að vera leiðarljós í öllu starfi, börnum skal veitt umhyggja, hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og stuðlað að öryggi þeirra og vellíðan. Í leikskóla fer fram samþætt nám sem tekur til allra grunnþátta menntunar þar sem sjálfsprottinn leikur er aðal námsaðferðin sem studdur er af hvetjandi námsumhverfi og fagmennsku starfsfólks.

Starfsaðferðir í leikskólanum Vinagarði styðjast við leiðarljós aðalnámskrár leikskóla og eru sett fram á eftirfarandi hátt:

  • Við leggjum áherslu á að leikskólinn sé lærdómssamfélag barna, starfsfólks og foreldra þar sem allir hafa eitthvað til málanna að leggja, hugarfar sé inngildandi og virðing sé borin fyrir einstaklingum og fjölbreytileika samfélagsins.
  • Sjálfssprottinn leikur er námsleið barna þar sem spurningar vakna og þeim svarað, vandamál skapast sem og lausnir á þeim, samskipti eflast og námsviðhorf mótast.
  • Við vinnum að því að börnin beri umhyggju fyrir öðrum, fái svigrúm og leiðsögn til að mynda sterk tengsl og vináttu og tilheyri í leikskólasamfélaginu á eigin forsendum.
  • Við höfum áhuga á barnæskunni og leggjum okkur fram við að sjónarhorn barna heyrist og hafi sjáanleg áhrif á starfið.
  • Við leggjum okkur fram við að styðja börnin í að móta sér jákvæða sjálfsmynd, þau hafi tækifæri til að læra á tilfinningar sínar og tjá þær í öruggu umhverfi.
  • Viðfangsefni og námsumhverfi hvetji börnin áfram í þroska og námi, stuðli að því að þau eflist í trú á eigin getu, þekki styrkleika sína, virkji sköpunarkraftinn og hafi jákvæð viðhorf til náms.
  • Við viljum efla sjálfstæði, styðja við sjálfshjálp og frumkvæði barna í víðum skilningi, hvort sem það snýr að eigin þörfum, að létta undir með öðrum, leysa vandamál og bera ábyrgð.
  • Við fylgjumst vel með þroska og framvindu hvers barns og grípa snemma inn í ef barn þarf sérstakan stuðning samkvæmt skýrum verkferlum sem eru aðgengilegir foreldrum og starfsfólki.
  • Virkt innra mat á skólastarfinu er með þátttöku allra sem að leikskólanum koma þar sem stöðugar umbætur byggðar á gögnum og umræðum eru innleiddar í starfshætti og skipulag.
  • Í leikskólanum ríki kærleiksríkur andi þar sem gleði, von og trú skapar vellíðan og öryggi allra sem að skólanum koma.