Læsi og samskipti í leikskólastarfinu

Sjálfbærni og útikennsla

Námssvið leikskólans eru læsi og samskipti, heilbrigði og vellíðan, sjálfbærni og vísindi, sköpun og menning. Námssviðin byggja á sex grunnþáttum menntunar sem eru þau sömu á öllum skólastigum. Grunnþættir menntunar og námssvið leikskóla fléttast saman og tengjast daglegum athöfnum í leikskólanum.

 

Læsi og samskipti

Í Vinagarði er unnið með læsi í víðum skilningi þar sem margbreytileiki tungumálsins og möguleikar þess eru sjáanleg í umhverfi barnsins. Börnin hlusta á sögur, ljóð og ævintýri og semja eigin frásagnir þar sem þau endurskapa og deila upplifun sinni og hugmyndum um eigið líf, samfélag og menningu. Samskipti í barnahópnum grundvallast á fjölbreyttum tækifærum til tjáningar og þjálfun í að hlusta á og skilja aðra þannig að samskiptin séu uppbyggileg og kærleiksrík. Leikskólinn hefur sett sér læsisstefnu (link) þar sem lesa má nánar um áherslur á læsi í leikskólastarfinu.

 

Sköpun og menning

Í Vinagarði er skapandi starf grundvallarþáttur í námi og þroska barna þar sem gleði, könnun og tjáning er í forgrunni. Efniviður er opinn og börnin hafa val um útfærslu sinna verkefna. Hlustað er eftir hugmyndum barna um verkefni sín, bæði með markvissum hætti hjá eldri börnum en einnig með því að yngri börn hafi fyrir augum fjölbreyttan efnivið í skapandi stundum þar sem stuðlað er að frumkvæði og virkni. Tónlistarstundir og söngur er ríkur þáttur í leikskólastarfinu í Vinagarði og byggir miðlun þjóðmenningar og heimamenningar barna að stórum hluta þar á.

 

Sjálbærni og vísindi

Vinagarður býr við einstakt nærumhverfi sem er beintengt við náttúru og dýralíf. Frjáls leikur og skipulögð útikennsla er jöfnum höndum á opnum skógarsvæðum, auk þess sem Grasagarðurinn og Húsdýragarðurinn bjóða upp á nær takmarkalausa möguleika á upplifunum og fræðslu um lífríkið. Í rannsóknargönguferðum eru tækifæri til að skoða fugla og skordýr, jurtir og tré, skoða tölur, tákn og mynstur, fjarlægðir og áttir.

 

Heilbrigði og vellíðan í

Vinagarði grundvallast heilbrigði og vellíðan barna á kærleika og umhyggju. Starfsfólk leggur sig fram um að rækta tengsl við og á milli barnanna og stuðla að tilfinningalegu jafnvægi hvers barns. Stór útisvæði bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu og krefjandi útivist oft á dag, oftar en ekki á opnu skógarsvæði þar sem athafnafrelsi barnanna er mikið. Skipulagðar hreyfistundir og dans koma þar til viðbótar auk þess sem rými er fyrir góða slökun og hvíld sem er nauðsynleg fyrir virkni og vellíðan barnsins.

 

Lýðræði, mannréttindi og jafnrétti

Starfið í Vinagarði hvílir styrkum stoðum á vináttunni sem er ein megináhersla skólans. Börnin læra að í sannri vináttu ríkir virðing fyrir vali og styrkleikum annarra, að þar þarf að ríkja skilningur á réttindum þeirra sjálfra og samspili við réttindi annarra. Börnin hafa nægt svigrúm til að velja viðfangsefni í frjálsum leik, frelsi til þess að skipta um viðfangsefni og velja leikfélaga þar sem kennarastýrðar hópaskiptingar eru í lágmarki. Jafnréttisáætlun skólans nær einnig til barna og námsumhverfis þar sem megináhersla er á að efniviður endurspegli fjölbreytileika og stuðli að jafnrétti, að hugað sé markvisst að hlutdeild allra í barnahópnum og að orðræða og hlutverkaskipting í leikskólastarfinu vinni gegn staðalmyndum kynjanna.