Leikskólinn Vinagarður byggir starf sitt á kristilegum grunni þar sem lögð er áhersla á að efla kristið siðgæði og veita trúarlegt uppeldi sem byggir á gildum skólans um trú, von og kærleika. Í starfi leikskólans er lögð áhersla á að börnin læri um náttúruna og að bera virðingu og umhyggju fyrir henni jafnt og öllu því sem Guð hefur skapað. Vináttan í víðum skilningi þess orðs er rauður þráður í starfi leikskólans og eitt af sérkennum hans.
Til viðbótar við kristilegt siðgæði og trúarlegt uppeldi sækir leikskólinn hugmyndir sem snúa að námsumhverfi, samskiptum og öryggi.
Hugmyndir John Dewey um jákvætt og vingjarnlegt námsumhverfi þar börn læra að vinna saman í félagslegri heild og þróa með sér sjálfsvitund og skilning eru einar langlífustu og áhrifamestu kenningar í uppeldis- og menntunarfræði. Dewey lagði megináherslu á að virkja barnið og vekja áhuga þess. Hann trúði því að barn ætti að læra af reynslu sinni, virkni og áhuga og að kennarar þurfi að sinna því hlutverki að námsumhverfið sé hvetjandi fyrir vöxt og þroska barns og leiðbeina því með umhyggju og virðingu. Mihaly Csikszentmihalyi rannsakaði og skrifaði mikið um námsumhverfi. Í hans kenningaramma þarf námsumhverfið að leiða til þess að barn komist í svokallað flæði þar sem einbeiting að verkefninu hverju sinni er alger og barnið næstum ómeðvitað lærir og þroskast í því. Csikszentmihalyi lagði í skrifum sínum áherslu á mikilvægi innri hvata; að barn finni hjá sér þörf til að læra og skapa en sé ekki einungis að vinna að verkefnum sem kennari krefst þess að séu unnin. Námsumhverfið þurfi því að bjóða upp á tækifæri fyrir börn að þróa verkefni sem tengjast þeirra áhugasviðum og styrkleikum.
Norska fræðikonan Berit Bae leggur í sínum skrifum áherslu á að viðurkennandi samskipti milli barna og kennara sé mikilvægur liður í því að skapa jákvætt og árangursríkt námsumhverfi. Samskipti barna og kennara snúist ekki eingöngu um miðlun upplýsinga heldur þarf kennari að skilja sjónarhorn barnsins og svara þeirra þörfum og tilfinningum. Kennari þarf einnig að geta lesið í óyrt samskipti og þannig fengið mikilvægar upplýsingar um líðan, tilfinningar, skoðanir og ætlanir barnsins. Til þess að það sé mögulegt þarf að byggja upp og viðhalda trausti í samskiptum barna og kennara. Þegar börn finna til öryggis og virðingar séu þau líklegri til þess að hafa áhuga á námi og þroskandi verkefnum, hugsa út fyrir sinn þægindaramma og reyna sig við að leysa vandamál. Gagnkvæmur skilningur, virðing og traust í samskiptum kennara og barna leggja að mati Berti Bae grunn að námsumhverfi sem hvetur og styður við nám og þroska.
Christophersen og Mortweet hafa skilgreint nokkur lykilatriði fyrir vellíðan og þroska barna á leikskólaaldri þar sem meðal annars er að finna félagsfærni, frjálsan leik og málörvun en ekki síður leggja þeir áherslu á að í leikskólum sé ákveðin rútína, sérstaklega hvað snertir máltíðir, hvíld og aðra þætti daglegs lífs. Slíkt auki öryggi barna og hjálpi þeim að þroska með sér sjálfsstjórn sem er nauðsynleg forsenda frekara náms. Kennari þarf að beita virkri hlustun og skilja hug barnsins en einnig gefa barni skýr skilaboð og setja mörk ásamt því að vera barnahópnum fyrirmynd í samskiptum og atferli. Með því eflist sjálfstæði barnsins, það lærir að takast á við erfiðleika og dregur úr líkum á hegðunarvanda þegar fram líða stundir.